{"id":22074,"date":"2023-05-28T17:01:09","date_gmt":"2023-05-28T17:01:09","guid":{"rendered":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/?post_type=artwork&p=22074"},"modified":"2023-05-28T17:09:06","modified_gmt":"2023-05-28T17:09:06","slug":"barbara-arnason-1911-1975","status":"publish","type":"artwork","link":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/artwork\/barbara-arnason-1911-1975\/","title":{"rendered":"Barbara \u00c1rnason\u00a0(1911-1975)"},"content":{"rendered":"\n
\u00c1ri\u00f0 1983 f\u00e9kk K\u00f3pavogsb\u00e6r veglega listaverkagj\u00f6f \u00far Minningarsj\u00f3\u00f0i Barb\u00f6ru og Magn\u00fasar \u00c1. \u00c1rnason K\u00f3pavogsb\u00e6. Alls voru \u00feetta t\u00e6plega 300 listaverk, \u00fear af um 100 verk eftir Barb\u00f6ru, teikningar, tr\u00e9stungur, vatnslitamyndir, \u00ferykkjur og vatnslita\u00ferykk.\u00c1ri\u00f0 1983 f\u00e9kk K\u00f3pavogsb\u00e6r veglega listaverkagj\u00f6f \u00far Minningarsj\u00f3\u00f0i Barb\u00f6ru og Magn\u00fasar \u00c1. \u00c1rnason K\u00f3pavogsb\u00e6. Alls voru \u00feetta t\u00e6plega 300 listaverk, \u00fear af um 100 verk eftir Barb\u00f6ru, teikningar, tr\u00e9stungur, vatnslitamyndir, \u00ferykkjur og vatnslita\u00ferykk.<\/p>\n\n\n\n
Barbara Moray Williams f\u00e6ddist \u00ed Su\u00f0ur-Englandi 19. apr\u00edl 1911. H\u00fan var afbur\u00f0arnemandi \u00ed Listah\u00e1sk\u00f3la \u00ed Lund\u00fanum. Til \u00cdslands kom h\u00fan fyrst \u00e1ri\u00f0 1936 og hitti \u00fear ver\u00f0andi eiginmann sinn Magn\u00fas \u00c1. \u00c1rnason, listamann. \u00c1ri\u00f0 eftir gengu \u00feau \u00ed hj\u00f3naband og bjuggu fyrstu \u00e1rin \u00ed Reykjav\u00edk en fluttust \u00ed K\u00f3pavoginn sumari\u00f0 1959 og voru b\u00fasett \u00fear s\u00ed\u00f0an.
Barbara og Magn\u00fas \u00c1 \u00c1rnason i\u00f0ku\u00f0u b\u00e6\u00f0i list s\u00edna af miklum dugna\u00f0i allt sitt l\u00edf og eftir \u00feau liggur mikill fj\u00f6ldi verka. \u00cd kj\u00f6lfari\u00f0 fluttust \u00fdmsir fleiri listamenn \u00ed K\u00f3pavog. Barbara anda\u00f0ist \u00ed \u00e1rslok 1975 og var jar\u00f0sungin fr\u00e1 K\u00f3pavogskirkju 9. jan\u00faar 1976.
Verk Barb\u00f6ru eru \u00feekkt af \u00fej\u00f3\u00f0inni allri. Auk fj\u00f6lda s\u00fdninga sem h\u00fan helt h\u00e9rlendis og yfirlitss\u00fdninga sem haldnar voru henni til hei\u00f0urs t\u00f3k Barbara \u00fe\u00e1tt \u00ed fj\u00f6lm\u00f6rgum sams\u00fdningum erlendis og \u00e1tti myndir \u00e1 al\u00fej\u00f3\u00f0legum graf\u00edks\u00fdningum.
Barbara haf\u00f0i fr\u00e1 \u00fev\u00ed a\u00f0 h\u00fan var barn skrifa\u00f0 og skreytt b\u00e6kur. \u00cd \u00e6sku h\u00f6f\u00f0u h\u00fan og tv\u00edburasystir hennar Ursula \u00fea\u00f0 fyrir si\u00f0 a\u00f0 skiptast \u00e1 b\u00f3kum \u00e1 afm\u00e6lisd\u00f6gum og \u00e1 j\u00f3lum, sem \u00fe\u00e6r s\u00f6mdu og myndskreyttu, en b\u00e1\u00f0ar \u00e6tlu\u00f0u a\u00f0 ver\u00f0a rith\u00f6fundar. Barbara var snjall teiknari og \u00e1tti au\u00f0velt me\u00f0 a\u00f0 breyta um st\u00edl eftir efni og anda \u00feeirra b\u00f3ka sem h\u00fan myndskreytti hverju sinni. F\u00ednleg og v\u00f6ndu\u00f0 vinnubr\u00f6g\u00f0 \u00e1samt n\u00e6mri tilfinningu fyrir skreyti einkenna b\u00f3kaskreytingar Barb\u00f6ru, og \u00fe\u00e6r eru jafnan taldar marka t\u00edmam\u00f3t \u00ed \u00edslenskri b\u00f3ka\u00fatg\u00e1fu.<\/p>\n\n\n\n
\u00cd tilefni aldarafm\u00e6lis listakonunnar 19 apr\u00edl 2011 var yfirlitss\u00fdning me\u00f0 verkum hennar opnu\u00f0 \u00ed Ger\u00f0arsafni. Yfir 250 verk eftir listakonuna voru til s\u00fdnis auk fj\u00f6lda myndskreyttra b\u00f3ka, j\u00f3la- og t\u00e6kif\u00e6riskorta, j\u00f3lamerkja og fleira sem Barbara hefur skreytt. M\u00f6rg verkanna \u00e1 s\u00fdningunni voru \u00ed einkaeigu og h\u00f6f\u00f0u aldrei \u00e1\u00f0ur komi\u00f0 fyrir almenningssj\u00f3nir.
\u00cd vestursal voru vatnslitamyndir eftir Barb\u00f6ru en \u00fe\u00e6r eru m.a. vitnisbur\u00f0ur um \u00fe\u00e6r bygg\u00f0ir \u00cdslands sem h\u00fan heims\u00f3tti \u00e1samt eiginmanni s\u00ednum \u00e1 \u00e1runum 1937 til 1975. S\u00ed\u00f0ustu vatnslitamyndirnar m\u00e1la\u00f0i h\u00fan \u00e1 \u00deingv\u00f6llum sumari\u00f0 \u00e1\u00f0ur en h\u00fan l\u00e9st. \u00de\u00e1 m\u00e1la\u00f0i h\u00fan barnamyndir, sem ur\u00f0u mj\u00f6g eftirs\u00f3ttar, sem og myndir af d\u00fdrum og villi- og stofubl\u00f3mum.
\u00cd austursal m\u00e1tti m.a. sj\u00e1 verk sem Barbara vann \u00far lopa. Til \u00feessara verka teljast b\u00e6\u00f0i veggteppi og t\u00edskuvara. Lopaverk Barb\u00f6ru eru eitt af \u00fev\u00ed frumlegasta sem lagt hefur veri\u00f0 af m\u00f6rkum til \u00edslenskrar vefjarlistar \u00e1 s\u00ed\u00f0ustu \u00f6ld. H\u00fan s\u00fdndi \u00feau margsinnis \u00ed Par\u00eds og seldi vel.
\u00c1 ne\u00f0ri h\u00e6\u00f0 Ger\u00f0arsafns voru verk eftir Barb\u00f6ru sem s\u00fdndu hvernig henni t\u00f3kst a\u00f0 n\u00e1 undraver\u00f0um t\u00f6kum \u00e1 hinni ofurn\u00e1kv\u00e6mu og vandas\u00f6mu t\u00e6kni tr\u00e9stungunnar. Barbara lag\u00f0i me\u00f0 tr\u00e9stungunum grunninn a\u00f0 \u00edslenskri \u00ferykk list og telst me\u00f0al brautry\u00f0jenda \u00e1 \u00fev\u00ed svi\u00f0i h\u00e9r \u00e1 landi.<\/p>\n\n\n\n
<\/p>\n","protected":false},"featured_media":17633,"template":"","artwork-category":[212],"artists":[209],"class_list":["post-22074","artwork","type-artwork","status-publish","has-post-thumbnail","hentry","artwork-category-listaverkagjof","artists-barbara-arnason"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/artwork\/22074","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/artwork"}],"about":[{"href":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/types\/artwork"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/artwork\/22074\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media\/17633"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=22074"}],"wp:term":[{"taxonomy":"artwork-category","embeddable":true,"href":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/artwork-category?post=22074"},{"taxonomy":"artists","embeddable":true,"href":"https:\/\/gerdarsafn.kopavogur.is\/en\/wp-json\/wp\/v2\/artists?post=22074"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}