Opið í dag

12:00-18:00

GERÐUR | YFIRLIT

31.05.2018
–07.10.2018
gerdur-yfirlit-7
Á sýningunni er sjónum beint að fjölbreyttum listferli og ævi Gerðar Helgadóttur (1928-1975) myndhöggvara, allt frá námsárum hennar til síðustu æviára, en Gerður lést fyrir aldur fram aðeins 47 ára gömul. Tók hún fyrst íslenskra kvenna forystu í höggmyndalist og var brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist og glerlist hérlendis.  Sýningin varpar ljósi á ólík tímabil í lífi Gerðar með völdum þemum sem móta meginstef og tengingar milli verka hennar. GRUNNUR veitir innsýn í námsár Gerðar og þróun frá hefðbundnum akademískum aðferðum í höggmyndagerð til tilrauna á fyrstu árum hennar í París. VINNUSTOFA opnar sýn á nýjar vinnuaðferðir þegar Gerður fer að vinna óhlutbundin verk í járn. GLUGGI endurspeglar það tímabil er hún tekur að vinna steinda glugga bæði hérlendis og í Evrópu og þann aukna áhuga á dulspekilegum kenningum sem birtist í verkum hennar. GARÐUR vísar í þann tíma í lífi Gerðar er hún byrjar að gera verk í steypu, gifs og leir, en sjálf hóf hún að setja upp sýningu á þeim verkum í garðinum sínum í Frakklandi. RÝMI endurspeglar síðustu ár Gerðar og þann fjölda verka sem hún vann í almenningsrými sem og hugmyndir að verkefnum sem hún vann fyrir ýmis rými, ólík að umfangi og stærð. Til grundvallar sýningunni eru fjórtán hundruð verk Gerðar Helgadóttur úr safneign Gerðarsafns – Listasafns Kópavogs, en erfingjar listamannsins gáfu verkin til Kópavogsbæjar árið 1977. Gerðarsafn er reist í minningu Gerðar og opnaði árið 1994. Sköpunarkraftur og tilraunastarfsemi Gerðar er leiðarstef í starfsemi safnsins sem einnig endurspeglar stöðu þess sem eina listasafn landsins stofnað til heiðurs listakonu. Sýningin er sett upp í tilefni níræðisafmælis Gerðar í ár og hlaut verkefnið styrk úr Safnasjóði. Á sýningunni er sjónum beint að fjölbreyttum listferli og ævi Gerðar Helgadóttur (1928-1975) myndhöggvara, allt frá námsárum hennar til síðustu æviára, en Gerður lést fyrir aldur fram aðeins 47 ára gömul. Tók hún fyrst íslenskra kvenna forystu í höggmyndalist og var brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist og glerlist hérlendis. Sýningin varpar ljósi á ólík tímabil í lífi Gerðar með völdum þemum sem móta meginstef og tengingar milli verka hennar. GRUNNUR veitir innsýn í námsár Gerðar og þróun frá hefðbundnum akademískum aðferðum í höggmyndagerð til tilrauna á fyrstu árum hennar í París. VINNUSTOFA opnar sýn á nýjar vinnuaðferðir þegar Gerður fer að vinna óhlutbundin verk í járn. GLUGGI endurspeg lar það tímabil er hún tekur að vinna steinda glugga bæði hérlendis og í Evrópu og þann aukna áhuga á dulspekilegum kenningum sem birtist í verkum hennar. GARÐUR vísar í þann tíma í lífi Gerðar er hún byrjar að gera verk í steypu, gifs og leir, en sjálf hóf hún að setja upp sýningu á þeim verkum í garðinum sínum í Frakklandi. RÝMI endurspeglar síðustu ár Gerðar og þann fjölda verka sem hún vann í almenningsrými sem og hugmyndir að verkefnum sem hún vann fyrir ýmis rými, ólík að umfangi og stærð. Til grundvallar sýningunni eru fjórtán hundruð verk Gerðar Helgadóttur úr safneign Gerðarsafns – Listasafns Kópavogs, en erfingjar listamannsins gáfu verkin til Kópavogsbæjar árið 1977. Gerðarsafn er reist í minningu Gerðar og opnaði árið 1994. Sköpunarkraftur og tilraunastarfsemi Gerðar er leiðarstef í starfsemi safnsins sem einnig endurspeglar stöðu þess sem eina listasafn landsins stofnað til heiðurs listakonu. Sýningin er sett upp í tilefni níræðisafmælis Gerðar í ár og hlaut verkefnið styrk úr Safnasjóði. Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, forstöðumaður  Brynja Sveinsdóttir, verkefnastjóri safneignar og miðlunar  Studio Studio / Arnar Freyr Guðmundsson, grafísk hönnun  Friðrik Steinn Friðriksson & Hreinn Bernharðsson, sýningarhönnun  Hrafnhildur Gissurardóttir, verkefnastjóri fræðslu og viðburða Kristín Dagmar Jóhannesdóttir, forstöðumaður Brynja Sveinsdóttir, verkefnastjóri safneignar og miðlunar Studio Studio / Arnar Freyr Guðmundsson, grafísk hönnun Friðrik Steinn Friðriksson & Hreinn Bernharðsson, sýningarhönnun Hrafnhildur Gissurardóttir, verkefnastjóri fræðslu og viðburða
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner