Opið í dag

12:00-18:00

Líkamleiki

19.01.2018
–15.04.2018
likamleiki_forsida-1
19.01.2018 – 15.04.2018 19.01.2018 – 15.04.2018 Sýningin Líkamleiki er hugleiðing um líkamann eins og hann birtist í samtímalist. Á sýningunni voru  valin verk eftir listamenn sem eiga það sammerkt að vísa í líkamann og líkamleika af ýmsu tagi. Leiðarljós sýningarinnar er maðurinn sem líkamleg vera sem upplifir, bregst við og á samskipti við annað fólk, náttúru og borgarumhverfi. Leit að einlægu sambandi mannsins við heiminn má finna í formi líkamlegrar upplifunar og viðbrögðum við umhverfi okkar. Líkaminn birtist sem miðill listamannsins í gjörningum þar sem hann umbreytist í skúlptúr, form og hreyfingu. Í öðrum verkum er sjónum beint að líkamlegum eiginleikum umhverfis okkar þar sem náttúrulegir og manngerðir hlutir verða áþreifanlegir og holdlegir. Titill sýningarinnar var fenginn úr heimspekilegri fyrirbærafræði, sem leitast við að endurheimta einlægt samband mannsins við heiminn. Líkamleiki er orð sem er aðeins til innan fyrirbærafræði og er áminning um að við upplifum sem líkamlegar verur – allar okkar skynjanir, hugsanir, minningar, áætlanir og samskipti eiga sér stað í og í gegnum líkama okkar. Listamenn sýningarinnar eru Bára Kristinsdóttir, Claire Paugam, Eirún Sigurðardóttir, Elín Hansdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Guðrún Benónýsdóttir, Haraldur Jónsson, Shoplifter / Hrafnhildur Arnardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Elvarsdóttir, Klængur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Roni Horn, Sigurður Guðmundsson, Steina, Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason. Sýningarstjóri: Brynja Sveinsdóttir. Sýningin var hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2018. Ljósmyndir af sýningu: Vigfús Birgisson
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner