Open today

12:00-18:00

Þorvaldur Skúlason

Sólsetur

Material Collection property

Listamaðurinn Þorvaldur Skúlason auðgaði svo sannarlega íslenskt listalíf og hefur listsköpun hans markað sér sess í íslenskri listasögu. Hann var einn af fyrstu abstraktmálurum á Íslandi en hann málaði einnig fígúratíft, þá aðallega í byrjun á ferlinum. Árið 1953 hófst geómetrískt tímabil hjá honum og var hann trúr hinu óhlutbundna það sem eftir var af ferlinum. 

Í verkinu Sólsetur (1982-83) dansa heitir og kaldir litir skemmtilega saman. Verkið túlkar innri sýn listamannsinns á byggingu forma og lita.

Í bókinni Abstrakt Geómetríu er texti þar sem Þorvaldur skrifar um nonfígúratíva myndlist og kemur þar fram: “Til þess að ná árangri í þessari list þurfa menn að vera gæddir næmu lit- og formskyni. Form og litir verða að lifa innra með málaranum. En þetta er þó ekki nóg. Hann verður að komast til botns í hinu sérstaka eðli hvers litar sem hann notar til þess að tjá sig.”

Þorvaldur fæddist árið 1906 á Borðeyri við Hrútafjörð. Þegar hann var ungur maður fótbrotnaði hann sem varð til þess að hann var mikið rúmliggjandi og fór hann þá að spreyta sig í teikningu. Í kjölfarið fór Þorvaldur til Reykjavíkur til þess að sækja leiðsögn í teikningu frá bæði Ásgrími Jónssyni og Þórarni Þorlákssyni. Þorvaldur lærði í Osló og einnig í París. Hann tók þátt í ótal samsýningum á ferlinum og einnig mikið af einkasýningum. Þorvaldur lést árið 1984, þá 78 ára. Listasafn Háskóla Íslands á stærstan hluta af verkum hans. 

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner