
Guðrún Bergsdóttir (1970-2024) var einstök listakona sem byrjaði að sinna listinni eftir þrítugt. Hún skapaði 66 myndir á 18 ára tímabili, frá 2000 – 2018. Guðrún fór að vinna með garn á striga og saumaði út fríhendis. Hún starfaði á vinnustofunni Ási og vann hún að útsaumsverkum sínum í kaffipásum í vinnunni eða í strætó á milli staða.
Guðrún sýndi oft á hátíðinni List án landamæra og árið 2011 var Guðrún heiðurslistamaður hátíðarinnar. Verk sín vann hún án forskriftar og fylgdi flæðinu innra með sér. Fyrri verk Guðrúnar einkennast af meiri formfestu og geómetríu en með árunum þróast verkin og verða meira flæðandi og formin verða lífrænni.
Yfirlitssýning á verkum Guðrúnar Bergsdóttir var haldin á Gerðarsafni árið 2025 og mátti þar sjá mikið af útsaums og tússverkum hennar.
„Í verkum Guðrúnar má skynja tíma sem samhliða stendur í stað og líður hratt, asa og kyrrð, klið og þögn, eins og að sitja við læk, sem bæði er hjá okkur, en flæðir hjá á sama tíma.” – Margrét M. Norðdahl.