Opið í dag

12:00-18:00

Smiðja: Sápukúlumálun

26.09.2026
13:00
–15:00

Verið velkomin í Sápukúlumálun með myndlistarkonununni Írisi Maríu Leifsdóttur, laugardaginn 26. September frá 13:00 – 15:00!

Smiðjan er ókeypis og opin fyrir alla aldurshópa!

Ráðlagt er að vera í fötum sem mega litast.

Þátttakendur munu ekki mála með penslum heldur blása málningu og sápu á blöð til þess að búa til einstök og ófyrirsjáanleg listaverk. Allur efniviður verður á staðnum.

Nánar um leiðbeinandann:
Verk Írisar Maríu Leifsdóttur (f. 1993) eru samvinna listamanns, veðurs og tíma. Með veðrinu málar hún með íslenskum jarðefnum og olíu á striga, sem og býr til skúlptúra úr málmi eða leir. Hún er með kennsluréttindi í listum við Listaháskóla Íslands, hefur lokið meistaragráðu í myndlist frá sama skóla, bakkalárgráðu í félagsfræði frá Háskóla Íslands og diplóma í listmálun frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Íris María hefur sýnt á söfnum og galleríum bæði hérlendis og á Grænlandi.
Vefsíða: www.irisleifs.is