Hvað leynist í dótakassanum, skúffunni eða ruslinu sem gæti fengið nýtt líf sem jólaskraut?
Í smiðjunni, sem hentar öllum sem ráða við skæri og hnút verður unnið með alls konar endurnýtta og fundna hluti – borða, spotta, perlur, lok, smádót og annað sem annars gæti endað í ruslinu. Úr efniviðnum verður til óvenjulegt jólaskraut og pakkaskraut sem þú mátt svo taka með þér heim.
Umsjón með smiðjunni hefur hönnuðurinn Berglind Ósk Hlynsdóttir, öðru nafni BoskBoskBosk.