Safnbúð Gerðarsafns býður upp á fjölbreytt úrval af íslenskum og erlendum hönnunar-og gjafavörum, veggspjöldum, ritföngum, leikföngum, bókum, tímaritum og föndurvörum. Verslunin selur einnig vönduð eftirprent af verkum Gerðar Helgadóttur, Valgerðar Briem, Barböru Árnason og Valtýs Péturssonar. Safnbúðin er staðsett í anddyri Gerðarsafns og er opin frá kl.12-18 alla daga vikunnar.
Á Instagram og Facebook síðu safnbúðarinnar birtast reglulega nýjar vörur.