Opið í dag

12:00-18:00

Bjarni Þórarinsson

05.02.2027
–25.04.2027
Bjarni
Bjarni H. Þórarinsson

Sýningarstjórn

Brynja Sveinsdóttir & Unnar Örn Auðarson

Yfirlitssýning á æviverki Bjarna H. Þórarinssonar (1947-2025). Bjarni þróaði list sína á ýmsa vegu og vann hana í ýmsa miðla. Hann byggði verk sín á vísindalegu kerfi þar sem eðli og háttur, hugur og sál, tilfinning, form og efni, sem opnar ýmsar leiðir til skilinings. Vísirós er miðflötur kerfis Bjarna þar sem myndvísi, tónvísi, tónvísi og rökvísi eiga samleið í tungumáli sem er skipað niður í strangri reglu innan gefins rýmis.

Bjarni nam við nýlistadeild Magnúsar Pálssonar í Myndlista- og handíðaskóla Íslands, var einn af stofnendum Gallerí Suðurgötu 7, Nýlistasafnsins og tímaritsins Svarts á hvítu. Bjarni var myndlistarmaður, skáld og skrifaði kvikmyndahandrit en tungumálið var endurtekið í forgrunni í sköpun hans.

Mynd: Guðmundur Oddur Magnússon og Bjarni unnu gjarnan saman að samklipptum ljósmyndaverkum af Bjarna í karakter. Úr safneign Safnasafnsins.