Opið í dag

12:00-18:00

Tímavillingurinn

05.02.2027
–25.04.2027
asta-fanney-sigurdardottir-munnhola
Ásta Fanney Sigurðardóttir

Sýningarstjórn

Brynja Sveinsdóttir, Halla Einarsdóttir & Þorgerður Þórhallsdóttir

Ásta Fanney Sigurðardóttir (f. 1987) vinnur í ólíka miðla, svo sem tónlist, skúlptúr, videó, ljóðlist og gjörninga en hún var fulltrúi Íslands á Feneyjartvíæringnum 2026. Sýningin í Gerðarsafni mun draga fram kjarnann í listsköpun Ástu Fanneyjar, hennar óþrjótandi sköpunarflæði og leikgleði, með því að kynna eldri verk hennar fyrir gestum safnsins auk þess að bjóða fólki að upplifa nýja gjörninga sem framdir verða á sýningartímanum, bæði á safninu og í almenningsrými í návígi þess. Samhliða sýningunni í Gerðarsafni opnar svo Feneyjarverk Ástu Fanneyjar, Pocket Universe, í Listasafni Íslands.

Mynd: Stilla úr Munnhola, obol ambla obla, 2021.