Verið velkomin á málþingið Myndvit: Arfleið Valgerðar Briem sunnudaginn29. nóvember klukkan 15:00 – 16:00 í tilefni nýútkominnar bókar með sama titli.
Valgerður Briem (1914–2002) var myndlistarkona, kennari og frumkvöðull á sviði myndmenntar. Ævistarf hennar mótaðist í samspili eigin listsköpunar og kennslu, þar sem form, litir, efni og sjónræn hugsun urðu að leiðarljósi. Valgerður steig fyrst fram opinberlega sem myndlistarmaður á Haustsýningu Félags íslenskra myndlistarmanna árið 1980, þá 66 ára. Að baki þeirrar stundar lágu áratugir af einbeittri vinnu: teikningar, vatnslitir, vaxmyndir, skissur, letur og mynstur. Þegar fjölskylda Valgerðar færði Gerðarsafni um 1.640 verk á pappír árið 2006 varð umfang þessa ævistarfs fyrst fyllilega sýnilegt.
Á málþinginu koma fram:
Cecilie Gaihede, sýningarstjóri sýningarinnar Valgerður:
Cecilie er listfræðingur og forstöðumaður Myndlistarmiðstöðvar. Hún nam listfræði, menningarfræði, verkefnastjórnun og opinbera stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Í störfum hennar mætast rannsóknir á íslenskri myndlist, sýningargerð, safnastarf og alþjóðlegt samstarf. Áður en hún tók við starfi forstöðumanns Myndlistarmiðstöðvar var hún verkefnastjóri safneignar og rannsókna Gerðarsafns, þar sem hún vann að rannsóknum á safneigninni og miðlun íslenskrar listasögu.
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir, listheimspekingur:
Aðalheiður Lilja Guðmundsdóttir (f. 1968) er sjálfstættstarfandi fræðimaður á sviði listfræða, heimspeki og myndlistar. Árin 2010–2021 starfaði hún sem lektor og fagstjóri fræða við myndlistardeild Listaháskóla Íslands og kennir enn námskeið í listfræði við sama skóla og við Háskóla Íslands. Hún hefur sinnt ýmsum verkefnum á fagsviðum listfræða og myndlistar, þar á meðal rannsóknum, skrifum og sýningargerð. Rannsóknir hennar hafa aðallega beinst að samtíma myndlist, bókverkagerð listamanna og kynjafræðum innan lista. Aðalheiður Lilja lærði heimspeki við Háskóla Íslands og listheimspeki við Parísarháskóla 1, Panthéon-Sorbonne.
Hrefna Sigurðardóttir, grafískur hönnuður:
Hrefna Sigurðardóttir er grafískur hönnuður og lektor í hönnunardeild Listaháskóla Íslands. Hrefna útskrifaðist með BA í grafískri hönnun frá LHÍ 2012 og MFA í grafískri hönnun frá Yale School of Art árið 2018. Í starfi sínu sinnir Hrefna menningartengdum hönnunarverkefnum, kennslu í grafískri hönnun og rannsóknum sem snúa að hönnunarsögu, samfélögum sem mótast í kringum útgáfu og sjónrænu tungumáli þeirra.
Jón Proppé, listheimspekingur:
Jón Proppé er listheimspekingur, gagnrýnandi og sýningarstjóri. Hann nam heimspeki við University of Illinois og hefur um árabil skrifað um íslenska myndlist og menningu. Eftir hann liggur fjöldi greina, bókakafla og texta í sýningarskrám. Jón er einn höfunda Íslenskrar listasögu, sem kom út í fimm bindum árið 2011, og hefur samhliða ritstörfum sinnt kennslu, ritstjórn og sýningarstjórn.
Aðgöngumiði á safnið gildir á viðburðinn – Verið öll velkomin!