Opið í dag

12:00-18:00

Gerðarverðlaunin 2026

06.12.2026
16:00
–17:00

Verið hjartanlega velkomin á afhendingu Gerðarverðlaunanna, miðvikudaginn 6. desember kl. 16:00 í Gerðarsafni.

Gerðarverðlaunin eru til heiðurs Gerði Helgadóttur myndhöggvara og eru veitt listamanni fyrir ríkulegt framlag til höggmynda- og rýmislistar á Íslandi. Gerðarverðlaunin eru nú veitt í sjöunda sinn en fyrri handhafar þeirra eru Sólveig Aðalsteinsdóttir, Rósa Gísladóttir, Þór Vigfússon, Finnbogi Pétursson, Ragna Róbertsdóttir og Helgi Hjaltalín Eyjólfsson.

Léttar veitingar verða í boði.

Gerðarverðlaunin eru veitt með stuðningi frá Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.