Opið í dag

12:00-18:00

Jólastund í safnbúð Gerðarsafns ✨

28.11.2026
16:00
–18:00

Verið velkomin á jólastund í safnbúð Gerðarsafns, laugardaginn 28. nóvember kl. 16:00-18:00 ✨

Viðburðurinn er partur af Aðventuhátíð Kópavogsbæjar og í tilefni af Alþjóðlega safnbúðardeginum og verður boðið upp á léttar veitingar og jólalega tóna frá DJ Pétri Eggerts.

Í safnbúðinni finnur þú úrval af fallegri gjafavöru, eftirprentum, skartgripum, bókum, ritföngum, föndurkössum og leikföngum, ásamt einstökum handverks- og hönnunarvörum sem henta vel í jólapakkana.

Á meðan viðburðinum stendur bjóðum við upp á fallega gjafainnpökkun fyrir jólagjafir úr safnbúðinni svo þær séu tilbúnar beint undir jólatréð.