Opið í dag

12:00-18:00

Magnús Á. Árnason

Fljótshverfi

1967
Efni Safneign

Verkið Fljótshverfi er málað með olíu á masónít og er 44 x 56 cm að stærð. „Yndi hans af náttúruskoðun var svo samtvinnað málverkinu, að þar fór ætíð eitt með öðru. Að ferðast var honum sama og að mála; að mála var honum sama og að njóta þeirra staða sem hrifnæmur hugur hans dróst að. Að þessu leyti ríkti fyllsta samræmi milli mannsins og málverka hans” skrifar Björn Th. Björnsson um Magnús.

Listamaðurinn Magnús Á. Árnason (1894 -1980) var myndlistarmaður, tónskáld og rithöfundur. Aðallega er Magnús þekktur fyrir málaralist, teikningu og höggmyndalist en hann myndskreytti einnig bækur, þýddi heimsbókmenntir og setti fram hugleiðingar um andleg málefni.

Listferill Magnúsar hófst fyrir alvöru þegar hann fór til náms í Kaupmannahöfn árið 1912. Hann ætlaði sér að verða portrett málari í upphafi listferils síns, en byrjaði síðan að mála landslagsmyndir með vatnslitum þegar systurdóttir hans dó, en hún hafði verið hans helsta fyrirsæta. Magnús dvaldi í Bandaríkjunum í rúm 12 ár og stundaði meðal annars nám þar. Viðhorf Magnúsar gagnvart listinni einkenndist af metnaði og mikilvægi þrotlausrar vinnu. Hann hélt því fram að það hefði lítið upp á sig að listamaður biði aðgerðarlaus eftir uppljómun heldur verði hún til í kjölfar mikillar vinnu.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner