Opið í dag

12:00-18:00

Barbara Árnason

Tígrisdýr

1940
Efni Safneign
Stærð  12 x 11,5 cm

Barbara Árnason var afar fjölhæf og snjöll listakona, hún myndskreytti bækur, gerði veggskreytingar, verk úr lopa, vann með tréstungu og gerði vatnslitaþrykkjur svo eitthvað sé nefnt. Hún hélt ávallt sínu striki og aðhylltist ekki framúrstefnuhreyfingum. Verkið Tígrisdýr er 12 x 11,5 cm að stærð og kom inn í safneign Gerðarsafns árið 1983 en verkið sjálft er frá 1940. Um er að ræða tréstungu sem Barbara var svo fær í. 

Barbara Árnason kom fyrst til Íslands árið 1936, en hún fæddist í Suður-Englandi árið 1911. Barbara bjó í Reykjavík fyrstu árin eftir komuna til Íslands með eiginmanni sínum og listamanninum Magnúsi Á. Árnasyni, en þau fluttust síðan í Kópavoginn árið 1959. Hún heillaðist mikið af landi og þjóð og fannst óbyggðir landsins áhugaverðar. 

Árið 2011 var opnuð yfirlitssýning á verkum Barböru í Gerðarsafni og voru hinar nákvæmu tréstungur hennar þar meðal annars til sýnis. Barbara var mikill brautryðjandi í þrykklist hér á landi og má segja að hún hafi átt stóran þátt í að leggja grunn að íslenskri svartlist. Tæknin sem hún notaði var mjög frábrugðin því sem tíðkaðist á þessum tíma. Hún fór ávallt sínar eigin leiðir og aðhylltist ekki ákveðna listastefnu. 

Á sumrin fór Barbara í ferðalög um landið í leit að innblæstri fyrir myndefni ásamt Magnúsi eiginmanni sínum. Barbara Árnason lést árið 1975.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner