Gegnumstreymi – Á hringtorgi í Hamraborg í Kópavogi
Bronsskúlptúrinn gerði listakonan fyrir fjölbýlishúsahverfi í Frakklandi. Sú tillaga komst aldrei til framkvæmda en eftir andlát Gerðar létu kvenfélögin í Kópavogi stækka verkið og prýðir það nú hringtorg við Hamraborg, steinsnar frá Gerðarsafni.
Upphaflegi skúlptúrinn sem er 40cm á hæð er í safneign Gerðarsafns.