Open today

12:00-18:00

Fyrirmynd, eftirmynd: Hugmyndir og höfundareinkenni í leturteikningum Valgerðar Briem

MENNING Á MIÐVIKUDÖGUM
09.12.2026
12:15
–13:00

Verið velkomin á fyrirlestur Hrefnu Sigurðardóttir um leturteikningar Valgerðar Briem, miðvikudaginn 9. desember klukkan 12:15 – 13:00.

Á sjöunda áratugnum teiknaði myndlistarkonan og kennarinn Valgerður Briem (f. 1914 d. 2002) fjölda leturteikninga fyrir textíl sem varðveittar eru á Gerðarsafni. Leturteikningarnar voru gerðar fyrir framsetningu í textíl og vildi Valgerður gefa þær út í stafabók fyrir útsaum. Bókin beið prentunar lengi og kom ekki út á sínum tíma en leturteikningar hennar eru nú til sýnis á yfirlitssýningu hennar á Gerðarsafni. Í fyrirlestrinum verður fjallað letur í íslenskum stafabókum, samhengi þeirra við leturteikningar Valgerðar Briem, höfundareinkenni hennar og þær hugmyndir sem þar má greina. 

Hrefna Sigurðardóttir er grafískur hönnuður og lektor í hönnunardeild Listaháskóla Íslands. Hrefna útskrifaðist með BA í grafískri hönnun frá LHÍ 2012 og MFA í grafískri hönnun frá Yale School of Art árið 2018. Í starfi sínu sinnir Hrefna menningartengdum hönnunarverkefnum, kennslu í grafískri hönnun og rannsóknum sem snúa að hönnunarsögu, samfélögum sem mótast í kringum útgáfu og sjónrænu tungumáli þeirra. 

Myndatexti: Leturteikning eftir Valgerði Briem, 1967. Ljósmynd: Vigfús Birgisson