Open today

12:00-18:00

Karólína Lárusdóttir

Fínt kaffiboð

Material Collection property
Size  99 x 124,5 cm

Verkið Fínt kaffiboð var sýnt á Gerðarsafni árið 2000 og eignaðist safnið verkið í kjölfarið. Olíuverkið er 99 x 124,5 cm að stærð. Í verkum Karólínu er íslenskt mannlíf og landslag hennar helsta viðfangsefni. Hún eyddi miklum tíma í að virða fyrir sér mannlífið á Hótel Borg og málaði mikið eftir því. Listsköpun hennar var þó mótuð af breskri myndlistar/mannamyndahefð. Karólína Lárusdóttir fæddist árið 1944 og bjó hún og starfaði að mestu í Bretlandi. Hún lærði í Ruskin School of Fine Art í Oxford og útskrifaðist árið 1967. Karólína sagði í blaðaviðtali árið 1993 að það hafi alltaf legið beinast við að setjast að erlendis.

Listakonan talaði um í sama viðtali að hún hafi verið lengi að komast inn í listheiminn í Bretlandi, það gerðist smátt og smátt. Hún var orðin mjög eftirsóttur málari og fékk þó nokkur boð um að halda sýningar úti. Karólína hélt margar einkasýningar í löndum eins og Danmörku, Ítalíu, Bretlandi, Frakklandi og Afríku. Árið 1982 flutti hún til Íslands og sýndi verk sín t.d á einkasýningu á Kjarvalsstöðum skömmu eftir heimkomuna.

Listsköpun Karólínu túlkar hversdagsleikann en oftast er um að ræða mjög afmarkaðar aðstæður. Mikil áhersla er á andlitsdrætti hjá fólkinu í mörgum verkum hennar og er mjög algengt að ekki sé augnsamband á milli fólksins í verkunum. Miðpunkturinn í verkinu Fínt kaffiboð mætti segja að sé presturinn þar sem allir eru í kringum hann, bæði gestirnir og þjónustufólk. Hann er þungur á brún og lítur út fyrir að vera þungt hugsi. Athygli fólksins í verkinu beinist inn á við og er eins og þau séu ekki viðstödd þar sem þau eru.