Open today

12:00-18:00

Magnús Á. Árnason

Haustlitir

1975
Material Collection property
Size  44 x 56 cm

Verkið haustlitir eftir Magnús Á. Árnason (1894-1980) kom inn í safneign Gerðarsafns árið 1983 en verkið sjálft er frá árinu 1975. Um er að ræða olíuverk á masónít og er það 44 x 56 cm að stærð. Magnús var mikill náttúruunnandi og málaði hann mikið af landslagsverkum. Hann gerði þó nokkuð margar myndir af trjám, plöntum og blómum. Í þessu verki skartar náttúran sínum fallegu haustlitum. Litabreytingin á laufblöðunum gegnir því mikilvæga hlutverki að undirbúa trén fyrir vetrardvala þeirra. Haustlitirnir í náttúrunni brjóta upp hversdagsleikann og hafa margir það fyrir venju að gera sér ferð á Þingvelli t.d. þegar haustlitirnir skarta sínu fegursta.

Listamanninum Magnúsi Á. Árnasyni var margt til lista lagt, hann var myndlistarmaður, tónskáld og rithöfundur. Magnús fór til Kaupmannahafnar í nám árið 1912 og hófst listferill hans þá. Hann ætlaði sér að verða portrett málari í upphafi listferils síns, en byrjaði síðan að mála landslagsmyndir með vatnslitum þegar systurdóttir hans dó, en hún hafði verið hans helsta fyrirsæta. Magnús dvaldi í Bandaríkjunum í rúm 12 ár og stundaði meðal annars nám þar. Hann giftist listakonunni Barböru Moray Williams Árnason og hlotnaðist Gerðarsafni sá heiður að eignast mikið af verkum eftir þau hjónin.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner