
Ívar er fyrst og fremst ljósmyndari. Hann notar miðilinn til að skapa myndlist en í hverju verki býr innsýn, uppgötvun, meðvitund og afhjúpun leyndarmáls um miðlinn.
Litríkir en léttir fletir fléttast saman innan kassa, þeir gefa okkur tillögur að þrívíðu rými og skala sem við skynjum eflaust öll með okkar nefi. Hugur okkar les línur, liti og skynjar þrívíddina. Sú þrívídd er þó föst í tvívíðum miðli. Litirnir og línurnar vísa til raunveruleikans en eru samt svo nærri því að vera abstrakt. Verk Ívars Translucent Colors er heillandi rannsókn á takmörkunum ljósmyndamiðilsins, á mannlegri skynjun. Ívar leitast þar við að leysa ljósmyndina úr viðjum þyngdaraflsins, rugla áhorfandann bókstaflega í rýminu með að gefa lítið upp um upp og niður, neita honum um haldfestu á heiminum.
Ívar hefur sýnt á mörgum einka- og samsýningum frá útskrift sinni árið 1988 frá San Francisco Art Institute en er nú kannski í fyrsta sinn í aðalhlutverki í stóra salnum. Ævistarf Ívars spannar ótrúlega breidd viðfangsefna, frá portrettmyndum af samferðamönnum Ívars til ummerkja um flugeldafögnuð næturinnar teknar fyrsta dag á nýju ári, frá snjóhrúgum fyrir utan heimili hans að kosningaskrifstofum forsetaframbjóðenda. Það mætti segja að í verkunum felist hljóðlát uppreisn. Gegn meginstraumi ljósmyndaverka á Íslandi, gegn flötum skilningi okkar á ljósmyndamiðlinum — gegn blindu okkar fyrir töfrum hversdagsins.
Texti úr sýningarskrá: Hallgerður Hallgrímsdóttir.