Open today

12:00-18:00

Inuuteq Storch

Keepers of the Ocean

2022
Material Collection property

Þrjár ljósmyndir úr ljósmyndaseríu Inuuteq Storch, Keepers of the Ocean. Myndirnar sýna hversdagslíf hans og nærsamfélags hans í Sisimiut í Grænlandi.

Inuuteq Storch notar ljósmyndir sínar til að segja sögur innfæddra Grænlendinga sem, skráir þær með eigin hendi í stað þess að láta nýlenduherrana um það. Storch gagnrýnir þannig að mestöll skrásetning sögu íbúa Grænlands hafi verið í höndum Evrópubúa og bandarískra ferðamanna í landinu en ekki íbúanna sjálfra. Hann notar ljósmyndamiðilinn til að endurheimta sögur frumbyggja landsins og valdefla þau gegn sjónarhorni nýlenduherrans með því að miðla sjónrænni sjálfsmynd þjóðar. Hann vinnur einnig með fundnar ljósmyndir og skjöl úr grænlenskri sögu til að endurskrifa hana frá sjónarhorni Grænlendinga. Með vinnu sinni miðar hann að því að varpa ljósi á líf berskjaldaðrar þjóðar í viðkvæmri stöðu sem er smám saman að tapa lífsháttum sínum. Hann veltir fyrir sér hvað það þýði að eiga heima, tilheyra, og að samsama sig þjóðerni, frá sjónarhorni innfæddra. Með verkum hans býðst okkur að ímynda okkur mögulegar sögur þar sem yfirráð nýlenduherrans eru víðs fjarri, mögulegar sögur um frelsun og vald sem væru skrásettar, túlkaðar og staðfestar af frumbyggjum Grænlands.