Myndlistarmaðurinn Hreinn Friðfinnsson var einn af okkar fremstu listamönnum og tók hann þátt í ótal mörgum samsýningum og hélt margar einkasýningar. Hreinn sagði í viðtali árið 2018 að hann hefði misst töluna á öllum þessum sýningum fyrir löngu síðan. Í sama viðtali sagði Hreinn að hann vildi ekki skilgreina verk sín sjálfur, heldur láta aðra um það.
Verkum Hreins hefur gjarnan verið lýst sem ljóðrænum, heimspekilegum og með ákveðinn léttleika yfir sér. Hann hefur unnið með hina ýmsu miðla, skúlptúr, ljósmyndun, innsetningar og fleira. Hreinn var einn af frumkvöðlum hugmyndalistar á Íslandi og tók þátt í stofnun SÚM-hópsins ásamt þremur öðrum myndlistarmönnum.
Í þessu verki má sjá málningarspýtur sem notaðar eru til þess að gera litaprufur sem hann fékk í málningarbúð í Amsterdam. Í texta sýningarinnar Blint stefnumót í Gerðarsafni 2016 kemur eftirfarandi fram um verkið: „Í verkinu Á rigningardegi fá hversdagslegir hlutir nýja merkingu þegar settir í samhengi myndlistar, tréprik sem hafa verið notuð til að hræra málningu í málningarverslun eru sett upp eftir ákveðinni forskrift. Prikin hafa mörg verið notuð oftar en einu sinni og verða þau hvert fyrir sig að marglaga málverkum.“
Hreinn fæddist í Dalasýslu árið 1943 og ólst þar upp. Hann stundaði nám við Myndlista-og handíðaskóla Íslands árin 1958-60. Hann fór einnig til Ítalíu og Frakklands til náms. Hreinn flutti síðan til Amsterdam árið 1971 og var hann búsettur þar. Árið 2024 lést Hreinn, þá 81 árs.