Open today

12:00-18:00

Haraldur Jónsson

Litrof

2017
Material Collection property

Myndlistarmaðurinn Haraldur Jónsson er fæddur árið 1961 í Helsinki. Hann stundaði nám í frönskum bókmenntum og menningarsögu við Paul Valéry háskólann í Montpellier í Frakklandi. Jafnframt lagði hann stund á myndlistarnám við háskólann í Aix en Provence í Frakklandi. Haraldur lærði einnig í Myndlistarskóla Reykjavíkur, Myndlista- og handíðaskólanum og Listaakademíunni í Düsseldorf. Árið 2019 var Haraldur valinn borgarlistamaður Reykjavíkur. Verk hans eru í eigu safna hérlendis og einnig ýmissa safna í Evrópu og Bandaríkjunum. Það sem einkennir gjarnan verk Haralds, þó svo að miðlarnir séu oft ólíkir, er að þau fjalla um tilveru okkar. En Haraldur vinnur t.d. með hljóðinnsetningar, skúlptúra, gjörninga, teikningar og ljósmyndir.

Litrof er fjórtán mynda ljósmyndaröð frá árinu 2017 og keypti Gerðarsafn verkið 2019. Verkið verður til á þann hátt að ljós er látið falla í gegnum litfilmur á pappírsskúlptúr. Ljósmyndaröðin var hluti af sýningunni „Líkamleiki“ sem sýnd var á Gerðarsafni árið 2018. Ljósmyndaröðin er umbreyttur skúlptúr þar sem þrívíðir eiginleikar skúlptúrsins blekkja á þann hátt að áhorfandinn fær það á tilfinninguna að ljósmyndin sjálf sé brotin. Litirnir í myndunum eru allt frá því að vera mjúkir pastel litir yfir í að vera bjartir, sterkir og skarpir. Afar áhugavert er að sjá hvernig skæru litirnir í verkinu spila saman við djúpa skugga. Verkið mætti líta á sem abstrakt verk og sífellt er hægt að túlka og sjá eitthvað nýtt í því eftir því sem áhorfandinn horfir lengur á það.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner