Open today

12:00-18:00

Gerður Helgadóttir

Samklipp

1953
Material Collection property
Size  23 x 34,5

Í þessu samklippuverki má sjá geómetrísk form spila skemmtilega saman, stór sem smá. Þau hafa verið klippt út og límd á flötinn. Hún notaðist m.a. við litaðan pappír í gráum, grænum og bleikum lit. Gerður dró einnig línur eða strik með svörtu bleki inn á myndina. Verkið er 23 x 34,5 cm að stærð. Mikið af geómetrísku formunum í verkinu eru hornrétt og eru láréttar og lóðréttar línur í fyrirrúmi. Á sýningunni Geómetría sem stóð yfir á Gerðarsafni í lok árs 2022 mátti sjá tvær samklippumyndir eftir Gerði.

Gerður Helgadóttir fæddist árið 1928 og lést 1975 og því var listrænn ferill Gerðar fremur stuttur, eða um 30 ár. Þrátt fyrir stuttan feril skildi hún eftir sig gífurlegan fjölda listaverka. Hún var búsett í París mestallan starfsferil. Eins og margir vita vann Gerður með ýmis efni í listsköpun sinni og er óhætt er að segja að sköpunarkraftur og afburða listrænir hæfileikar hafi verið hennar náðargáfa. Gerður var stórhuga og var nálgun hennar í listinni tilraunakennd. Í viðtali árið 1954 sagði Gerður: „ekki skiptir máli í hvaða stíl menn vinna, því stíllinn er aðeins ytra form.”

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner