Open today

12:00-18:00

Gerður Helgadóttir

Steint gler

Material Collection property
Size  91 x 66 cm

Listakonan Gerður var mjög sjálfstæð og frumkvöðull í glerlist hér á landi. Verkið gerði hún á árunum 1969-1970 og er það 91 x 66 cm að stærð. Djúpir bláir tónar eru í fallegu samspili við græna tóna og hvíta mynstrið í miðju verksins nýtur sín vel. Steindi glugginn er gerður eftir andlát Gerðar af Oidtmann verkstæðinu í Þýskalandi sem hún vann mikið með á ferlinum.

Á Ítalíu hjá vinkonu sinni Iriu Bernardini, uppgötvar Gerður gluggalist. Árið 1955 lærði hún tæknina við að skera glerið á Barillet verkstæðinu í París og furðar Gerður sig á hversu vel henni gengur að læra tæknina í bréfi til föður síns.

Hún gerði gluggalist fyrir margar kirkjur hér á landi og erlendis og fyrsta stóra verkefnið sem hún fékk að gera var gluggaverk fyrir kapelluna á elliheimilinu Grund í Reykjavík.

Gerður Helgadóttir (1928-1975) afkastaði miklu á stuttri starfsævi. Sjálf leit hún fyrst og fremst á sig sem myndhöggvara. Eftir nám í Handíðaskólanum fór Gerður til náms í Flórens og París og hlaut þar menntun í klassískri höggmyndagerð og nútíma höggmyndalist. Í París bjó Gerður stærstan hluta starfsævi sinnar og töldu franskir listgagnrýnendur hana vera meðal áhugaverðustu myndhöggvara í borginni á þeim tíma.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner