Verkið er hluti af myndröð abstrakt teikninga sem nefnist Landlit (1967-70) og er verkið 57 x 88,5 cm að stærð. Myndröðin er unnin með blandaðri tækni og endurspeglar hún margbreytileika náttúrunnar. Í verkinu má skynja útlínur fyrir hrauni og er nánast eins um loftmynd sé að ræða.
Verk Valgerðar voru sýnd ásamt verkum dóttur hennar Valgerðar Bergsdóttur árið 2006 í Gerðarsafni og voru þar verk úr myndröðinni Landlit til sýnis.
„Hún bar ómælda virðingu fyrir sköpunarverkinu og manneskjunni, mynd- og hljóðheimi henanr og taldi alla hafa eiginleika til persónulegrar sköpunar; hjálpa ætti hverju barni snemma í skólastarfi að þróa sinn eigin tjáningarmáta en að hér á landi hæfist það ferli alltof seint” skrifar Kristín Þorkelsdóttir, fyrrum nemandi Valgerðar í Morgunblaðið árið 2006.
Listakonan og myndlistarkennarinn Valgerður Briem (1914-2002) nam myndlist í Svíþjóð á árunum 1945-1947. Hún kenndi við myndlista- og handíðaskólann og Austurbæjarskóla. Ásamt því að kenna sinnti Valgerður list sinni að kappi og skapaði hún m.a. ótal teikningar og vatnslitamyndir. Verk hennar urðu aldrei mjög þekkt meðal almennings.