Open today

12:00-18:00

Hljóðheimur Fossvogs | Opnun útilistaverks

17.09.2023
15:00

Hljóðheimur Fossvogs

Verið velkomin á opnun útilistaverksins „Hljóðheimur Fossvogs“ sunnudaginn 17. september kl. 15 í Fossvogsdalnum, rétt hjá Víkingsheimilinu. Verkið er tímabundið útilistaverk sem virkjar samtal milli listar og náttúru og er afurð evrópsks samstarfsverkefnis sem Gerðarsafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs eru aðilar að. Þrír dansarar munu flytja dansgjörning á meðan opnuninni stendur inni í útilistaverkinu.
Aðgangur er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin að koma!

Verkið „Hljóðheimur Fossvogs“ birtir hljóðheim Fossvogsdals með rekavið sem var safnað á ströndum Hrútafjarðar og Djúpavíkur. Með því að nota rekavið er leitast við að blása nýju lífi í efni sem er til staðar án þess að hafa skýran tilgang.

Höfundaverksins eru:
Michal Machciník myndhöggvari (Slóvakía)
Matyáš Barák, hönnuður (Tékkland)
Linde Hanna Rongen, dansari (Ísland/Holland)
Chiara Lusso, mannfræðingur (Ítalía)

RE-USER er evrópskt samstarfsverkefni sem snýr að tengslum myndlistar og náttúru. Löndin sem eru samstarfsaðilar verkefnisins eru Ísland, Ítalía, Slóvakía og Tékkland.
Tilgangur verkefnisins er fyrst og fremst að kanna mörkin á milli myndlistar og náttúru með tímabundnum útilistaverkum.

Haldið var opið kall þar sem listamönnum, náttúrufræðingum, mannfræðingum, sýningarstjórum og fræðimönnum var boðin þátttaka og í kjölfarið var haldin stór ráðstefna í Prag þar sem samkeppni fór fram og valdar voru þrjár tillögur sem settar eru upp í Kópavogi, Feneyjum og Usti nad Orlici í Tékklandi.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner