Í tilefni 30 ára afmælis Gerðarsafns opnar sýningin Hamskipti sem varpar ljósi á einstaka arfleifð Gerðar Helgadóttur í íslenskri myndlist sem ber vitni um djúpa leit hennar að fagurfræðilegum sannleika.
Við sama tilefni fögnum við útgáfu Leitað í tómið – Listferill Gerðar Helgadóttur, safni fræðigreina þar sem listakonunni er fylgt í hringiðu módernismans í París og skoðaðar eru tengingar hennar við aðra listamenn og staða hennar í samtíma sínum.
Síðast en ekki síst verður afhjúpaður nýr skúlptúrgarður við Gerðarsafn en gestir geta þá loksins borið verk Gerðar augum bæði inni í safninu og fyrir utan það. Rétt eins og verkin eru sköpuð til.