Opið í dag

12:00-18:00

Baby Rave með DJ Ívari Pétri

FJÖLSKYLDUSTUNDIR Á LAUGARDÖGUM
17.01.2026
13:00
–15:00

Baby Rave er fjölskyldustund fyrir börn á öllum aldri til þess að dansa og hreyfa sig eins og þau listir. Listamaðurinn og plötusnúðurinn Ívar Pétur (FM Belfast) fer með gesti í ferðalag um allan heiminn og jafnvel út í geim með tónlistinni einni saman og fagna fjölbreytileika og fegurð listar og menningar frá sem flestum heimshornum. Lögð er áhersla á vinalega og skemmtilega stemningu þar sem börn á öllum aldri eru boðin velkomin á vinalegt rave.

Viðburðurinn er haldin í tengslum við sýninguna Skúlptúr skúlptúr performans sem er sýningarstýrt af Jo Pawlowskx.


Fjölskyldustundir menningarhúsanna fara fram á laugardögum frá klukkan 13, á víxl á Bókasafni Kópavogs (aðalsafni og Lindasafni), Gerðarsafni, Salnum eða Náttúrufræðistofu Kópavogs. Þátttaka er ókeypis og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.

Hjólastóla aðgengi á Gerðarsafni er gott og aðgangur ókeypis.