Það verður opið á Krónikunni í Gerðarsafni á Safnanótt fram eftir kvöldi þar sem hægt verður að fá sér ljúffenga pizzu og drykki. Frá 18:00 til 21:00 mun DJ Ívar Pétur sjá um tónlistina.
Fjölbreytt dagskrá verður í boði á Safnanótt.
Klukkan 19 munu Dýrfinna Benita og Sadie bjóða upp á listamannaleiðsögn um sýninguna Stara.
Frá 21 – 23 verður gjörningakvöld á Gerðarsafni. í samstarfi við Hamraborg Festival. Þau sem þar koma fram eru Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Curro Rodriguez, Hrefna Lind Lárusdóttir og Tara & Silla.
Ókeypis er á sýningar í Gerðarsafni á Safnanótt. Sýningin Stara stendur nú yfir á efri hæð safnsins en þar sýna Adele Hyry, Dýrfinna Benita Basalan, Jenny Rova, JH Engström, Jói Kjartans, Kristinn G. Harðarson, Michael Richardt og Sadie Cook. Á neðri hæð stendur yfir grunnsýning á verkum Gerðar Helgadóttur.