Opið í dag

12:00-18:00

Gluggar Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju

GERÐUR
22.09.2024
12:00
–13:00

Verið velkomin á erindi um steinda glugga Gerðar Helgadóttur með sr. Sigurði Arnarsyni sóknarpresti og Cecilie Gaihede sýningarstjóra sýningarinnar Hamskipti, sunnudaginn 22. september kl. 12:00 í Kópavogskirkju.

Ákveðið var að fá Gerði Helgadóttur til að hanna gluggana vorið 1962 og tókst, með þrautseigju Gerðar og góðum stuðningi bæjaryfirvalda og íbúa í Kópavogi, að koma þeim í bygginguna fyrir vígsluna þá um veturinn. Gluggana vann Gerður í samstarfi við víðfræga gluggasmiðju Oidtman-bræðra í Þýskalandi.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner