Opið í dag

12:00-18:00

Leiðsögn og samtal um FORA

MENNING Á MIÐVIKUDÖGUM
13.09.2023
12:15
–13:00

Leiðsögn og samtal um sýninguna FORA með Guju Dögg Hauksdóttur, arkitekt og Rósu Gísladóttur, myndlistarkonu.

Samband byggingar- og höggmyndalistar frá fornu fari, samfélag og helgiathafnir, erkitýpur í byggingarlist og frásagnir í form og rými er á meðal þess sem ber á góma í samtali Guju Daggar og Rósu en aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.

Viðburðurinn er styrktur af lista- og menningarráði Kópavogsbæjar.

————

Rósa Gísladóttir (f. 1957) nam myndlist í Þýskalandi, Bretlandi og á Íslandi. Verk hennar hafa verið sýnd víða hérlendis og erlendis, þar á meðal í Scandinavia House í New York, Saatchi Gallery í London, Listasafni Reykjavíkur, Hafnarborg, Listasafni Árnesinga og Berg Contemporary. Hún var fyrsti handhafi Gerðarverðlaunanna 2020, en þau eru veitt árlega framúrskarandi myndlistarmanni sem vinnur með skúlptúr og rýmisverk.

Guja Dögg Hauksdóttir (1965) er arkitekt cand.Arch frá Aarhus School of Architecture árið 1994. Frá útskrift hefur hún unnið með byggingingarlist á breiðum grundvelli rannsókna, þróunarstarfs og miðlunar á margvíslegu formi. 

Þegar gengið er inn á sýningu Rósu Gísladóttur vaknar tilfinning um að við séum stödd samtímis á fornum samkomustað og í rústum framtíðarinnar. Í sölunum ríkir ró. Þyngd verkanna veitir okkur jarðtengingu. Eða er hún ógnandi? Súlur sem þessar standa í þúsundir ára, þangað til þær gera það ekki lengur. Verðum við vitni að því augnabliki þegar þær falla?

Verk Rósu eru könnun á geometríu og klassískri formgerð með vísunum í arkitektúr og rússneskan konstrúktivisma. Skúlptúrar hennar spila á mörkum þess klassíska og nútímalega jafnframt í fagurfræði og efnisnotkun. Verk í við, gifs, keramik og gler skapa samspil við umhverfi sitt hvort sem það er staðbundið verk í borgarlandslagi eða skúlptúrar sem hverfast um sýningarrými.

Sýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir og Hallgerður Hallgrímsdóttir.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner