Opið í dag

12:00-18:00

Listamannaspjall | Líkamleiki

21.01.2018
16:00
Sunnudaginn 21. janúar kl. 16 fer fram listamannaspjall með Báru Kristinsdóttur, Claire Paugam, Evu Ísleifsdóttur og Katrínu Elvarsdóttur. Sýningin Líkamleiki var opnuð föstudaginn 19. janúar sem hluti af Ljósmyndahátíð Íslands 2018. Sýningin er hugleiðing um líkamann eins og hann birtist í samtímalist. Á sýningunni eru valin verk eftir listamenn sem eiga það sammerkt að vísa í líkamann og líkamleika af ýmsu tagi. Listamenn sýningarinnar eru Bára Kristinsdóttir, Claire Paugam, Eirún Sigurðardóttir, Elín Hansdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Guðrún Benónýsdóttir, Haraldur Jónsson, Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Elvarsdóttir, Klængur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Roni Horn, Sigurður Guðmundsson, Steina, Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason. Sýningarstjóri er Brynja Sveinsdóttir. Listamannaspjallið er hluti af viðburðadagskrá Ljósmyndahátíðar Íslands 2018. Aðgangur á safnið gildir á viðburðinn.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner