Opið í dag

12:00-18:00

Ljósið | Ragnar Th. Sigurðsson

28.02.2015
–04.04.2015
ragnarth.sigurdssonljosid2014_arcticimages-1
28.02.2015 – 04.04.2015 Á neðri hæð safnsisins stóð sýning á myndum Ragnars Th. Sigurðssonar, ljósmyndara og Norðurheimskautsfara, sem hann nefnir Ljósið. Sýningin stóð samhliða sýningunni Myndir ársins 2014 sem haldin var í sýningarsölum á efri hæð Gerðarsafns. Ragnar hóf feril sinn sem fréttaljósmyndari árið 1975. Hann setti á stofn eigið ljósmyndastúdíó Arctic-Images árið 1985 og hefur síðan hlotið alþjóðlegan orðstýr fyrir fjölbreytt verkefni. Ljósmyndir hans hafa birst víða; í auglýsingaherferðum, bókum, tímaritum og dagblöðum á borð við New York Times, Time, Newsweek, National Geographic, Digital Photographer og Geographical. Ragnar er þekktur fyrir einstæðar náttúruljósmyndir sínar og hefur fengist við ljósmyndun á Norðurheimsskautssvæðinu í yfir 30 ár. Hann hefur ferðast víða og ljósmyndað þekkt náttúruundur Íslands. Ljósmyndir Ragnars af gosinu í Eyjafjallajökli birtust m.a. á forsíðu New York Times og Time, sem síðar birtist í yfirliti tímaritsins fyrir myndir ársins 2010. Á neðri hæð safnsisins stóð sýning á myndum Ragnars Th. Sigurðssonar, ljósmyndara og Norðurheimskautsfara, sem hann nefnir Ljósið. Sýningin stóð samhliða sýningunni Myndir ársins 2014 sem haldin var í sýningarsölum á efri hæð Gerðarsafns. Ljósið. Ragnar hóf feril sinn sem fréttaljósmyndari árið 1975. Hann setti á stofn eigið ljósmyndastúdíó Arctic-Images árið 1985 og hefur síðan hlotið alþjóðlegan orðstýr fyrir fjölbreytt verkefni. Ljósmyndir hans hafa birst víða; í auglýsingaherferðum, bókum, tímaritum og dagblöðum á borð við New York Times, Time, Newsweek, National Geographic, Digital Photographer og Geographical. Ragnar er þekktur fyrir einstæðar náttúruljósmyndir sínar og hefur fengist við ljósmyndun á Norðurheimsskautssvæðinu í yfir 30 ár. Hann hefur ferðast víða og ljósmyndað þekkt náttúruundur Íslands. Ljósmyndir Ragnars af gosinu í Eyjafjallajökli birtust m.a. á forsíðu New York Times og Time, sem síðar birtist í yfirliti tímaritsins fyrir myndir ársins 2010. Titill sýningarinnar vísar í endurhæfingarmiðstöðina Ljósið, sem veitir stuðning fyrir fólk sem hefur fengið krabbamein og aðstandendur þeirra. Ragnar Th. Sigurdsson styrkir Ljósið um ágóða af sölu verkanna hjá Arctic-Images, www.arctic-images.com. www.arctic-images.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner