Opið í dag

12:00-18:00

NÚ EÐA ALDREI | Finissage | Hamskipti

20.10.2024
15:30
–16:30

Við kveðjum Hamskipti! Sunnudagurinn 20. október er síðasti sýningardagur sýningarinnar Hamskipti – Listsköpun Gerðar Helgdóttur og í tilefni verður finissage í Gerðarsafni kl. 15:30 og öll eru hjartanlega velkomin. Cecilie Gaihede sýningarstjóri verður með leiðsögn um sýninguna.

Sýningin Hamskipti varpar ljósi á einstaka arfleifð Gerðar Helgadóttur í íslenskri myndlist sem ber vitni um djúpa leit hennar að fagurfræðilegum sannleika. Sköpunarkraftur Gerðar var mikill, hugmyndirnar óteljandi og athugun hennar djúp og leitandi. Gerður var frumkvöðull innan höggmyndalistar og brautryðjandi í þrívíðri abstraktlist á Íslandi. Hún ögraði viðurkenndum hugmyndum um myndlist með tilraunakenndri nálgun sinni. Færni hennar var gífurleg, hún tileinkaði sér tækni fjölda flókinna aðferða og vann þvert á miðla, skapandi, dansandi, svífandi lipur, en á sama tíma svo kröftug.
Tilraunakennd, stórhuga og framúrstefnuleg nálgun Gerðar markaði henni sess sem einn helsti myndhöggvari þjóðarinnar og kallast sterkt á við myndlist samtíma okkar. Listaverkin standa eftir sem ummerki um reynslu listamannsins og könnun hennar á umhverfinu, og auka skilning okkar á tilvistinni þá og nú. Sýningarstjóri er Cecilie Cedet Gaihede.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner