Opið í dag

12:00-18:00

Skríðum inn í skel | Vetrarhátíð í Kópavogi

04.02.2021
–07.02.2021
Á innsetningunni Skríðum inn í skel tefla hönnuðir ÞYKJÓ fram litlum líkönum í skalanum 1:5 að ,,Kyrrðarrýmum” sem eru innblásin af skjaldbökum, sniglum, kuðungum og fleiri skeldýrum og Sóley Stefánsdóttir tónlistarkona kitlar ímyndunaraflið í gegnum eyrun okkar. Hvernig hljómar rigningin þegar við sitjum inni í skel og hlustum? Er hægt að flauta inni í kuðung? Kuðungur vex hring eftir hring en hvernig ferðast hljóðbylgjur ofan í vatninu? Safngripum úr eigu Náttúrufræðistofu Kópavogs er stillt upp í sama rými og skapa samtal við míniatúr líkön Gerðar Helgadóttur að skúlptúrum sínum sem minna einmitt á kuðunga, spírala og kúpla. Á stöku stað má sjá litla tindáta og ýmsar fígúrur sem fá okkur til að sjá þessa litlu hluti með öðrum augum, lítið verður stórt og stórt verður lítið.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner