Opið í dag

12:00-18:00

SMÖRREGAMI | Kvöldstund í Gerðarsafni

23.10.2024
18:00
–21:00

SMÖRREGAMI er hugguleg kvöldstund fyrir fullorðna þar sem þátttakendur fá tækifæri til að kynnast origami, og njóta léttra veitinga með japönsku ívafi!

Listsmiðjan er hugsuð sem skapandi og heildræn upplifun fyrir fullorðna, undir handleiðslu Yasuka Kawakami, sem kynnir gesti fyrir listinni að gera origami frá heimalandi sínu Japan. Þátttakendur læra að gera origami og búa til eigin óróa. Upplifunin að breyta einföldum pappír í fallega hangandi skúlptúra veitir mikla gleði. Yasuka mun leggja áherslu á form sem kallast trana sem samkvæmt japönskum sið er þekkt sem tákn vonar og friðar.

Verð fyrir SMÖRREGAMI er 12.900.-
Innifalið í kvöldstundinni er aðgangur að sýningum safnsins ásamt léttum veitingum frá Krónikunni og vínglas/óáfengur drykkur.
Til að bóka pláss er hægt að senda á gerdarsafn@kopavogur.is eða hringja í 441 7601 á opnunartíma safnsins.

Lágmarksfjöldi er 8 manns, hámark 15 komast að. Athugið að skráning er bindandi.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner