Í tilefni af 61 árs afmæli Surtseyjar verður gestum boðið upp á að prófa sýndarveruleika (VR) gleraugu frá Náttúrufræðistofnun Íslands og fara í ferðalag um Surtsey í Gerðarsafni! Samtímis verður listsmiðja með Gunndísi Ýr Finnbogadóttur og Þorgerði Ólafsdóttur listakonum sýningarinnar Óstöðugt land. Þar fá börn og fjölskyldur tækifæri til að gera klippimyndir og skapa eigin Surtsey.
Mynd: Valdir fletir úr þrívíddarmódeli af Surtsey, hægt að sjá á surtsey.is Með leyfi Surtseyjarfélagsins og Náttúrufræðistofnunar