Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá í menningarhúsunum í Kópavogi í vetrarfríi grunnskólanna, mánudaginn 19. og þriðjudaginn 20. febrúar.
Á Bókasafni Kópavogs verður hægt að búa til marglitt og töfrandi origami og skapa sín eigin póstkort og merkimiða úr gömlum og spennandi bókum. Þar verður líka boðið upp á skemmtilegar bíómyndir sem hægt er að njóta saman en Huldustofu á þriðju hæð verður breytt í notalegan bíósal.
Í Gerðarsafni verður náttúran skoðuð í gegnum linsu myndlistarinnar en smiðjurnar eru samstarfsverkefni Gerðarsafns og Náttúrufræðistofu Kópavogs. Börn og fjölskyldur geta líka farið í glænýtt Náttúrubingó um Borgarholtið og skoðað og hlustað á náttúruna um leið. Ský, gnauð í vindi, visnað blóm og sinustrá er á meðal þess sem þarf að finna á Borgarholtinu til að fylla út bingóspjaldið. Það má svo merkja spjaldið og skila inn á Gerðarsafn en dregið verður úr nöfnum þátttakenda. Heppnir bingóspilarar geta fengið nýjustu bók Stjörnu-Sævars, Hamfarir, í verðlaun.
Ókeypis er inn á sýningar í Gerðarsafni fyrir fullorðin í fylgd með börnum en þar standa nú yfir sýningarnar Venjulegir staðir og Venjulegar myndir. Sýningarnar byggja á Ívars Brynjólfssonar. Auk þess stendur yfir grunnsýning á verkum Gerðar Helgadóttur á jarðhæð Gerðarsafns.
11:00 | Bíósýning: Múlan (Bókasafn Kópavogs, 3. hæð)
13:00 | Bókamerkja-origamismiðja (Bókasafn Kópavogs, 3. hæð)
15:00 | List og náttúra (Gerðarsafn, jarðhæð)
20. febrúar
11:00 | Bíósýning: Herkúles (Bókasafn Kópavogs, 3. hæð)
13:00 | Korta- og merkimiðasmiðja (Bókasafn Kópavogs, 3. hæð)
15:00 | List og náttúra (Gerðarsafn, jarðhæð)
Frábært náttúrubingó í boði báða daga. Nálgist spjöldin á Bókasafni Kópavogs og í Gerðarsafni.
Bókasafn Kópavogs er opið frá 08:00 – 18:00 og Gerðarsafn frá 12:00 – 18:00. Ókeypis er á Gerðarsafn fyrir fullorðin í fylgd með börnum.
Verið hjartanlega velkomin.