Opið í dag

12:00-18:00

Viskustykki

SKAPANDI SUMARSTÖRF
03.07.2024
12:00

Guðný Margrét Eyjólfsdóttir og Iðunn Gígja Kristjánsdóttir

Listadúóið Viskustykki sýnir eggjandi vídeó og fremur alræmdan eggja gjörning, algjört áhættuatriði! Einbeitingin er í hámarki, en það er samt aldrei stutt í glensinn hjá þessum tveim. Gjörningurinn fer fram klukkan 12 að hádegi, en innsetningin stendur yfir út daginn

Viskustykki er hugarfóstur Guðnýjar Margrétar og Iðunnar Gígju. Þær skoða súrrealískan og ósjálfráðan húmor við gerð grínþáttar, þar sem gjörningar, spuni og tónlist koma saman í vinnuferlinu. Markmið verkefnisins er aukin dreifing absúrd húmors inn í íslenskt samfélag og aukinn sýnileiki gjörningalistar á samfélagsmiðlum, en fyrst og fremst er markmiðið að dreifa hlátri og gleði!

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner