Opið í dag

12:00-18:00

Skýjaborg

18.11.2020
–28.02.2021
olofmynd5-3
06.03.2021 – 15.05.2021 06.03.2021 – 15.05.2021 SÝNINGARSKRÁ SÝNINGARSKRÁ SÝNINGARSKRÁ Umfjöllun um Skýjaborg í Lestinni Umfjöllun um Skýjaborg í Lestinni Umfjöllun um Skýjaborg í Víðsjá Umfjöllun um Skýjaborg í Víðsjá Umfjöllun um Skýjaborg í Menningunni 30.03.2021 Umfjöllun um Skýjaborg í Menningunni 30.03.2021 Allt er byrjað og ekki búið* Allt er byrjað og ekki búið* Skýjaborg er sýning á verkum fjögurra samtímalistamanna sem sprettur úr sameiginlegum grunni: Kópavogi. Saga staðarins markast af stórhuga áætlunum og kristallar hraða uppbyggingu borgarrýma. Þetta er staður sem þróast úr sveit í borg á slíkum hraða að háhýsi eru byggð á sama tíma og sauðfjárbúskapur nær hámarki sínu. Þar sem ákveðið er að reisa 1200 fermetra listasafn þegar aðeins kvartkílómetri hefur verið malbikaður í kaupstaðnum. Hugmyndir um háborg þar sem allt sé mögulegt í útjaðri höfuðstaðar. Skýjaborg Skýjaborg vitnar um háleitar áætlanir á stórum og smáum skala. Einstaklinga sem byggja sér heimili úr niðurníddum kofa, ung pör sem reisa fjölbýli, og samtök íbúa sem láta til sín taka í málefnum síns bæjarfélags. Um það hvernig landsvæði er hráefni til breytinga og uppbyggingar en á kostnað þess sem var. Hvernig áætlanir einstaklinga breyta náttúru í manngert landslag og hvað verður þegar stjórn mannsins á umhverfinu sleppir. Hvernig sumar hugmyndir eru of stórar til að hægt sé að framkvæma þær og verða alltaf skýjaborgir. Skýjaborg Sagan minnir okkur á að umhverfi okkar er í stöðugri þróun og allt er breytingum háð. Áfram kortleggjum við framtíðina, leggjum undir okkur ný svæði og endurhugsum þau gömlu. Þannig byggjum við á framtíðarsýn fortíðarinnar og reynslunni ríkari reynum við að betrumbæta framtíðina. En eins og gerist með skýjaborgir er markmiðið gjarnan eins og hilling sem færist undan um leið og við nálgumst hana. Háleitar hugmyndir eru krafturinn sem drífur okkur áfram og tilgangur þeirra er ef til vill ekki alltaf sá að verða að veruleika heldur veita okkur innblástur og efna til umræðna. Skipulaginu lýkur aldrei, heldur flæðir það áfram í stöðugri endurnýjun að breyttum lífsháttum og þörfum framtíðarinnar. Listamenn: Berglind Jóna Hlynsdóttir | Bjarki Bragason | Eirún Sigurðarsdóttir | Unnar Örn Auðarson Sýningarstjórar: Brynja Sveinsdóttir & Klara Þórhallsdóttir *Úr texta Eirúnar Sigurðardóttur Mynd: Unnar Örn Auðarson, Staðfræði gleymsku [brot], 2021 Staðfræði gleymsku [brot],
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner