Opið í dag

12:00-18:00

Fullt af litlu fólki

19.09.2019
–05.01.2020
mg_3059-1
Sýningarskrá Sýningarskrá Sýningarverkefnið Fullt af litlu fólki tekst á við hið andlega í listum. Titillinn er sóttur í teikningu eftir austurríska mannspekinginn Rudolf Steiner frá árinu 1922, en hann vandi sig á að teikna myndir til stuðnings við hið talaða orð þegar hann hélt fyrirlestra. Fullt af litlu fólki Frumkvæði að sýningunni eiga þær Guðrún Vera Hjartardóttir og Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir (ÚaVon) sem hafa lengi velt fyrir sér hvernig andleg iðkun þeirra og áhugi á mannspeki geti samræmst listsköpun þeirra. Þátttakendur sýningarinnar eiga það sameiginlegt að rannsaka ríki hins óþekkta og sækja innblástur í andleg, spíritísk, esóterísk og/eða mannspekileg gildi og birta þau í myndlist, grafískri hönnun, dansi, tónlist og jafnvel fræðum. En auk listaverka á sýningunni er boðið upp á fyrirlestra, námskeið og samræður þar sem leitast er eftir að dýpka tengsl og skilning á sambandi milli hins andlega og efnislega. Þátttakendur: Hilma af Klint (SE), Gerður Helgadóttir (IS), Rudolf Steiner (AT/CH), Joseph Beuys (De), Guðrun Vera Hjartardóttir (IS), Sigrún Halldóra Gunnarsdóttir/ Úa Von (IS), Elsa Dórótea Gísladóttir (IS), Dawn Nilo (CA/US/CH), Martje Brandsma (NL), Silvana Gabrielli (IT,CH), Sati Katerina Fitzova (UK), Philipp Tok (DE/CH), Julius Rothlaender (DE/IS), Ruth Bellinkx (BE), Erla Þórarinsdóttir (IS), Páll Banine (IS), Walter Kugler (DE/CH), Johannes Nilo (SWE/CH), Edward de Boer (NL), Jón B. K. Ransu (IS), Jasper Bock (DE/IS). Sýningin Fullt af litlu fólki var styrkt af the Swiss Arts Council Pro Helvetia, Safnasjóði, Myndlistarsjóði, Iona Stitching, Antroposofiska félaginu og Kanto Basel-Stadt Kultur. Sýningin Fullt af litlu fólki var styrkt af the Swiss Arts Council Pro Helvetia, Safnasjóði, Myndlistarsjóði, Iona Stitching, Antroposofiska félaginu og Kanto Basel-Stadt Kultur. Mynd: Frá dansgjörningi Martje Brandsma á opnun Fullt af litlu fólki.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner