Opið í dag

12:00-18:00

Menning á miðvikudögum | Sýningarstjóraspjall

21.03.2018
12:15
Brynja Sveinsdóttir sýningarstjóri leiðir gesti í gegnum sýninguna Líkamleiki, sem er hugleiðing um líkamann eins og hann birtist í samtímalist. Á sýningunni eru valin verk eftir listamenn sem eiga það sammerkt að vísa í líkamann og líkamleika af ýmsu tagi. Listamenn sýningarinnar eru Bára Kristinsdóttir, Claire Paugam, Eirún Sigurðardóttir, Elín Hansdóttir, Eva Ísleifsdóttir, Guðrún Benónýsdóttir, Haraldur Jónsson, Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Hrafnkell Sigurðsson, Hreinn Friðfinnsson, Katrín Elvarsdóttir, Klængur Gunnarsson, Margrét Bjarnadóttir, Roni Horn, Sigurður Guðmundsson, Steina, Una Margrét Árnadóttir og Örn Alexander Ámundason. Sýningarstjóri er Brynja Sveinsdóttir. Menning á miðvikudögum er á dagskrá í hádeginu í hverri viku og fer ýmist fram í Gerðarsafni, Salnum, Náttúrufræðistofu eða Bókasafni Kópavogs. Dagskrá Menningar á miðvikudögum er öllum opin og er aðgangur ókeypis.
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner