Opið í dag

12:00-18:00

Samkeppni um Ljóðstaf Jóns úr Vör

12.09.2023
JÓN ÚR VÖR

Lista- og menningarráð Kópavogsbæjar efnir til samkeppni um Ljóðstaf Jóns úr Vör
Öllum skáldum er velkomið að taka þátt en ljóðið má ekki hafa birst áður.

Ljóði skal skilað í einu eintaki sem merkt skal dulnefni. Með eintakinu skal fylgja eitt lokað umslag merkt dulnefni skáldsins sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins. 

Ljóðstafurinn verður afhentur ásamt viðurkenningum sunnudaginn 21. janúar 2024 við hátíðlega athöfn í Salnum.

Skilafrestur er til og með 5. nóvember 2023.

GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner