Opið í dag

12:00-18:00

Menning á miðvikudögum | Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum

20.10.2021
12:15
–12:45
Óræð lönd: Samtöl í sameiginlegum víddum Snæbjörnsdóttir/Wilson 2001-2021 Listamennirnir Bryndís Snæbjörnsdóttir og Mark Wilson fagna nú 20 ára samstarfi með yfirlitssýningu í Gerðarsafni. Bryndís ræðir um verk sín í hádeginu miðvikudaginn 20. október kl. 12.15. Bryndís og Mark staðsetja list sína sem rannsóknar- og samfélagslist og nota gjarnan samspil manna og dýra í verkefnum sínum til að skoða málefni er varða sögu, menningu og umhverfið. Með listrannsóknum sínum kveikja þau hugleiðingar og samtal um hvernig heimurinn er að breytast og hlutverk okkar mannfólksins í þeim breytingum. Listamennirnir nálgast listsköpun sína með vistfræðilegri og heildrænni sýn. Verk þeirra eru þverfagleg í eðli sínu og taka gjarnan form innsetninga með skúlptúrum, fundnum hlutum, vídeóverkum, hljóði, teikningum, ljósmyndum og textum.  Sýningarstjóri: Becky Forsythe snaebjornsdottirwilson.com/
GDPR Cookie Consent with Real Cookie Banner