Gerðarsafn og Náttúrufræðistofa Kópavogs hlutu öndvegisstyrk frá Safnaráði til að vinna verkefnið Myndlist og náttúra. Í haust og vetur vinna söfnin að öðrum fasa verkefnisins með fyrstu bekkjum í grunnskólum Kópavogs undir heitinu Sex ára safnarar.
Sex ára safnarar fá tækifæri til að skoða hvernig náttúran er sýnd og skrásett í Náttúrufræðistofu. Þau rannsaka mismunandi gerðir steina, flokka þá eftir kerfum sem þau búa sjálf til og skrá með aðstoð safnkennara.
Síðan fara þau út í nærumhverfi safnanna ásamt myndlistarkennara og læra teikniaðferðina „frottage“, þar sem þau nota blað og blýant til að kalla fram áferð ýmissa hluta, skrásetja og skapa úr þessu eigið listaverk.