Verið velkomin í prentsmiðju fyrir börn laugardaginn 24. október á milli 13:00 – 15:00.
Allur efniðviður verður á staðnum og aðgangur er ókeypis.
Í smiðjunni skapa þátttakendur einþrykk í anda verkanna Landlit eftir Valgerði Briem sem nú eru til sýnis á Gerðarsafni. Notast er við einföld efni sem falla til og verkfæri sem finnast á heimilinu.
Börnin eru kynnt fyrir hugtökunum micro og macro, sem þau hafa á bakvið eyrun þegar þau skoða verkin hennar Valgerðar og einnig þegar þau skapa sín eigin verk.
Þátttakendum er velkomið að koma með efnivið úr endurvinnslutunnunni heima, en einnig verður nægur efniviður á staðnum.
Steinunn Önnudóttir starfar sem myndlistarmaður og sem kennari við Myndlistarskólann í Reykjavík. Hún vinnur í fjölbreytta miðla og með margskonar efnivið, gjarnan fundinn.