Ertu á aldrinum 16-25 og langar að leira í góðum félagsskap? Í vetur ætla ungmennahúsið Molinn og Gerðarsafn í samstarf þar sem ungmennum er boðið í listasmiðju í Gerðarsafni. Fyrsta smiðjan verður leir þar sem þátttakendur skapa listaverk eða nytjahlut úr steinleir sem síðar verður brenndur. Framtíðar smiðjur verða auglýstar síðar.