Hrekkjavakan er ævintýralegur tími; kynjaverur spretta fram, nornir fara á flug og allt getur gerst.
Í Gerðarsafni frá krakkar tækifæri til að galdra fram drauga, nornir, leðurblökur, uppvakninga og aðrar kynjaverur undir handleiðslu teiknarans og rithöfundarins Kristínar Rögnu Gunnarsdóttur.
Kristín hefur meðal annars skrifað æsispennandi bók sem heitir Nornasaga: Hrekkjavakan.