Verkin Heilnudd (2013) og Klóraðu mér aðeins (2022) eftir Unu Margréti Árnadóttur eru sýnd í Lúppu frá 26. 02. – 26. 04. Verkin voru nýlega fengin í safneign Gerðarsafns.
Una Margrét Árnadóttir (1985) er myndlistarmaður búsett í Reykjavík. Hún kynntist videómiðlinum fyrst á námskeiði þegar hún var 10 ára og segir það hafa opnað ýmislegt fyrir sér. Una skilgreinir sig ekki sem vídeólistamann þó hún nýti miðilinn oft. Fyrir henni er vídeóið frekar vettvangur fer performatívuna sem virðist elta hana í gegnum ferilinn.
Una hefur tekið þátt í fjölda sýninga hérlendis og erlendis frá því hún útskrifaðist frá Listaháskólanum í Malmö árið 2013. Ásamt því að vinna að eigin myndlist er hún einn af stofnendum sýningarrýmisins Open.